Hugbúnaðaruppfærslur
Nokia kann að framleiða hugbúnaðaruppfærslur með nýjum möguleikum, bættum
aðgerðum eða aukinni virkni. Þú getur nálgast þessar uppfærslur með forritinu Nokia
Software Updater PC. Til að uppfæra hugbúnað tækisins þarftu að hafa Nokia Software
Updater forritið og samhæfa tölvu með Microsoft Windows 2000, XP eða Vista stýrikerfi,
háhraðatengingu og samhæfa gagnasnúru til að tengja tækið við tölvuna.
Nánari upplýsingar um Nokia Software Updater forritið er að finna á www.nokia.com/
softwareupdate eða vefsíðu Nokia í þínu landi. Þar er einnig hægt að hlaða niður
forritinu.
Ef símkerfið styður hugbúnaðaruppfærslur með ljósvakaboðum kanntu einnig að geta
beðið um uppfærslur með símanum.
Sjá „Hugbúnaðaruppfærsla með
ljósvakaboðum“, bls. 36.
Mikilvægt: Aðeins skal nota þjónustu sem er treyst og sem veitir nægilegt öryggi
og vörn gegn skaðlegum hugbúnaði.