Lykilorð
Veldu Valmynd > Stillingar > Öryggi > Aðgangslyklar til að stilla hvernig síminn
notar aðgangslyklana og öryggisstillingarnar.
© 2008 Nokia. Öll réttindi áskilin.
8
● PIN-númerið (UPIN) sem fylgir með SIM-kortinu (USIM) kemur í veg fyrir að SIM-kortið
sé notað í leyfisleysi.
● PIN2-númerið (UPIN2-númerið), sem fylgir sumum SIM-kortum (USIM-kortum), er
nauðsynlegt til að hafa aðgang að tiltekinni þjónustu.
● PUK- (UPUK-) og PUK2-númer (UPUK2-númer) kunna að fylgja SIM-kortinu (USIM-
kortinu). Ef þú slærð inn rangt PIN-númer þrisvar sinnum í röð ertu beðinn um PUK-
númerið. Hafa skal samband við þjónustuveituna ef þessi númer fylgja ekki með
símanum.
● Öryggisnúmerið gerir þér kleift að verja símann gegn óheimilli notkun. Þú getur búið
til og breytt númerinu og stillt símann á að biðja um númerið. Haltu númerinu leyndu
og á öruggum stað fjarri símanum. Ef þú gleymir númerinu og síminn er læstur mun
síminn þarfnast viðgerðar og því getur fylgt aukakostnaður. Nánari upplýsingar fást
hjá Nokia Care þjónustuveri eða seljanda símans.
● Þegar útilokunarþjónusta er notuð til að takmarka símtöl í og úr símanum
(sérþjónusta) er lykilorðs útilokunar krafist.
● Til að skoða eða breyta stillingum öryggiseiningar fyrir netvafrann velurðu
Valmynd > Stillingar > Öryggi > Still. öryggiseiningar.