Nokia 7510 Supernova - Minniskort

background image

Minniskort

Á minniskorti er hægt að vista margmiðlunarskrár líkt og myndskeið, lög og hljóðskrár,

myndir og gögn í skilaboðum.

Valmynd símafyrirtækis

© 2008 Nokia. Öll réttindi áskilin.

38

background image

Sumar af möppunum í Gallerí með efni sem síminn notar (t.d. Þemu) kunna að vera

vistaðar á minniskortinu.

Minniskort forsniðið

Sum minniskort eru forsniðin af framleiðanda og önnur þarf að forsníða. Þegar

minniskort er forsniðið er öllum gögnum eytt af því varanlega.
1. Minniskort er forsniðið með því að velja Valmynd > Gallerí eða Forrit, möppu

minniskortsins og Valkostir > Forsníða minniskort > .

2. Þegar búið er að forsníða kortið skaltu slá inn heiti fyrir minniskortið.

Minniskortinu læst

Til að stilla lykilorð (hámark 8 stafir) til að læsa minniskortinu þínu og koma í veg fyrir

óheimila notkun skaltu velja möppu minniskortsins og Valkostir > Setja

lykilorð.
Lykilorðið er geymt í símanum og þú þarft ekki að slá það inn aftur á meðan þú notar

minniskortið í sama síma. Ef þú vilt nota minniskortið í öðru tæki verður beðið um

lykilorðið.
Til að eyða lykilorðinu velurðu Valkostir > Eyða lykilorði.

Minnisnotkun skoðuð

Hægt er að skoða minnisnotkun mismunandi gagna og það hversu mikið minni er laust

á minniskortinu til að setja upp nýjan hugbúnað, með því að velja minniskortið og

Valkostir > Upplýsingar.

13. Miðlar

Myndavél & myndupptaka

Hægt er að taka myndir eða taka upp hreyfimyndir með innbyggðu myndavélinni.

Myndir meðan

Við kyrrmyndatöku skaltu velja Valmynd > Miðlar > Myndavél, eða ef

hreyfimyndataka er virk flettirðu til hliðar.
Hægt er að stækka eða minnka myndina með því að ýta skruntakkanum upp og niður,

eða styðja á hljóðstyrkstakkana.
Veldu Mynda til að taka mynd. Myndirnar eru vistaðar á minniskorti, ef það er til staðar,

eða í minni símans.
Halda skal öruggri fjarlægð þegar flassið er notað. Ekki má nota flassið á fólk eða dýr

sem eru mjög nálægt. Ekki má hylja flassið þegar mynd er tekin.
Til að nota flass í hverri mynd skaltu velja Valkostir > Flass > Kveikja á flassi, en til

að virkja flassið sjálfvirkt þegar birtuskilyrði eru slæm velurðu Sjálfvirkt.
Til að birta mynd strax eftir að hún hefur verið tekin skaltu velja Valkostir >

Stillingar > Tími forskoðunar og forskoðunartímann. Til að taka aðra mynd á meðan