Útvarp
FM-útvarpið þarf annað loftnet en það sem er í þráðlausa tækinu. Samhæft höfuðtól eða
aukahlutur þarf að vera tengdur tækinu ef FM-útvarpið á að virka rétt.
Viðvörun: Hlusta skal á tónlist með hæfilegum hljóðstyrk. Stöðug áraun af háum
hljóðstyrk getur skaðað heyrn. Ekki skal halda tækinu nálægt eyranu þegar hátalarinn
er notaður því hljóðstyrkur getur verið mjög mikill.
Veldu Valmynd > Miðlar > Útvarp.
Hljóðstyrkurinn er stilltur með því að ýta á hljóðstyrkstakkana á hlið símans.
Til að nota myndrænu takkana á skjánum flettirðu upp, niður, til vinstri eða hægri.
Slökkt er á útvarpinu með því að halda inni hætta-takkanum.