Hvað ef rafhlaðan er ekki ósvikin?
Ef þú getur ekki staðfest að Nokia-rafhlaðan með heilmyndinni á miðanum sé ósvikin
Nokia-rafhlaða skaltu ekki nota rafhlöðuna. Farðu með hana til næsta viðurkennda
þjónustu- eða söluaðila Nokia. Notkun rafhlaðna sem eru ekki samþykktar af
framleiðanda getur verið hættuleg. Hún getur jafnframt leitt til þess að tækið og
aukahlutir þess virki ekki sem skyldi eða skemmist. Notkun þeirra kann jafnframt að
ógilda allar þær samþykktir eða ábyrgðir sem eiga við tækið.
Nánari upplýsingar um ósviknar Nokia rafhlöður er að finna á www.nokia.com/
battery.