Skeiðklukka
Hægt er að taka tíma, lotutíma eða millitíma með skeiðklukkunni.
Veldu Valmynd > Skipuleggjari > Skeiðklukka og svo einhvern af eftirtöldum
valkostum:
● Millitímar — til að taka millitíma. Til að núllstilla tímann án þess að vista hann
velurðu Valkostir > Núllstilla.
● Hringtímar — til að taka hringtíma
● Halda áfram — til að skoða tímann sem þú hefur fært í bakgrunninn
● Sýna síðasta — til að skoða nýjustu tímatökuna ef skeiðklukkan hefur ekki verið
núllstillt
● Skoða tíma eða Eyða tímum — til að skoða eða eyða vistuðum tímum
Til að láta skeiðklukkuna halda áfram í bakgrunni ýtirðu á hætta-takkann.
15. Forrit
Hugsanlegt er að einhverjir leikir eða forrit hafi verið sett upp í símanum þínum. Þessar
skrár eru vistaðar í minni símans eða á minniskorti og hægt er að raða þeim í möppur.
Sjá „Minniskort“, bls. 38.
Forrit keyrt
Veldu Valmynd > Forrit > Leikir, Minniskort eða Safn. Flettu að leik eða forriti og
veldu Opna.
Til að stilla hljóð, ljós og titring fyrir leik velurðu Valmynd > Forrit > Valkostir >
Stillingar forrita.
Eftirfarandi valkostir kunna einnig að vera í boði:
● Uppfæra útgáfu — til að kanna hvort hægt sé að sækja nýja útgáfu forritsins af
vefnum (sérþjónusta)
● Vefsíða — til að nálgast frekari upplýsingar eða viðbótargögn um forritið á Internet-
síðu (sérþjónusta), ef hægt er.
● Aðgangur forrits — til að takmarka aðgang forritsins að kerfinu