Símtalaskrá
© 2008 Nokia. Öll réttindi áskilin.
29
9. Tengimöguleikar
Síminn býður upp á mismunandi aðgerðir til að tengjast öðrum tækjum og senda og
taka á móti gögnum.
Þráðlaus Bluetooth-tækni
Með þráðlausri Bluetooth-tækni er hægt að tengja símann, með útvarpsbylgjum, við
samhæft Bluetooth-tæki sem er í innan við 10 metra fjarlægð (32 fet).
Þetta tæki er samhæft við Bluetooth Specification 2.1 + EDR sem styður eftirfarandi snið:
SIM access, object push, file transfer, dial-up networking, headset, handsfree, generic
access, serial port, generic object exchange, advanced audio distribution, audio video
remote control og generic audio/video distribution. Til að tryggja samvirkni milli
annarra tækja sem styðja Bluetooth-tækni skal nota aukabúnað sem eru viðurkenndir
af Nokia fyrir þessa tegund. Leita skal upplýsinga hjá framleiðendum annarra tækja um
samhæfi þeirra við þetta tæki.
Þau forrit sem notast við Bluetooth ganga á rafhlöðu símans og draga úr endingu
hennar.
Uppsetning Bluetooth-tengingar
Veldu Valmynd > Stillingar > Tengimöguleikar > Bluetooth og framkvæmdu
eftirtalin atriði:
1. Veldu Nafn símans míns og sláðu inn nafnið á símanum.
2. Til að koma á Bluetooth-tengingu skaltu velja Bluetooth > Kveikja. sýnir að
Bluetooth-tenging er virk.
3. Til að tengja símann við aukabúnað fyrir hljóð skaltu velja Tengja hljóðaukabún.
og tækið sem að þú vilt tengjast.
4. Til að para símann við öll Bluetooth-tæki á svæðinu skaltu velja Pöruð tæki > Bæta
við nýju tæki.
Veldu tækið og svo Bæta við.
Sláðu inn lykilorð (allt að 16 stafir) á símann til að heimila tengingu við annað
Bluetooth-tæki.
Hafir þú áhyggjur af öryggi skaltu rjúfa Bluetooth-tenginguna eða breyta stillingunni
Sýnileiki símans míns í Falinn. Samþykktu eingöngu Bluetooth-tengingu við þau tæki
sem þú treystir.
Tengingu tölvu við internetið
Notaðu Bluetooth-tækni til að tengja tölvuna við internetið án þess að nota PC Suite
hugbúnaðinn. Síminn verður að hafa virkjað þjónustuveitu sem styður internetaðgang
og tölvan verður að styðja Bluetooth-tækni. Eftir tengingu við aðgangsstað símans og
pörun við tölvuna opnar síminn sjálfkrafa pakkagagnatengingu við internetið.