Hringja
Veldu Valmynd > Stillingar > Símtals-stillingar og úr eftirfarandi:
● Símtalsflutningur — Til að flytja innhringingar (sérþjónusta). Ef til vill geturðu ekki
flutt símtöl ef einhver valkostur er virkur sem útilokar símtöl.
Sjá
„Öryggi“, bls. 37.
● Lyklaborðssvar — Til að svara mótteknum símtölum með því að styðja stutt á
einhvern takka, fyrir utan rofann, vinstri og hægri valtakkana eða hætta-takkann.
● Sjálfvirkt endurval — tTil að hringja sjálfkrafa aftur í númer ef ekki tekst að koma
á símtali. Síminn reynir að hringja í númerið 10 sinnum.
● Skýrleiki tals — Til að auka talskilning, einkum þegar umhverfishávaði er mikill.
● Hraðval — Til að hringja í nöfn og símanúmer sem úthlutað hefur verið á
talnatakkana (2-9) með því að halda viðeigandi talnatakka inni.
● Biðþjónusta símtala — Til að netkerfið láti vita af innhringingu meðan á öðru
símtali stendur (sérþjónusta).
● Lengd símtals — Til að birta lengd símtals sem stendur yfir.
● Samantekt símtals — Til að birta stuttlega áætlaða lengd allra símtala að þeim
loknum.
● Birta upplýs. um mig — Til að þeir sem þú hringir í sjái símanúmerið þitt
(sérþjónusta). Ef þú vilt nota stillingarnar sem þjónustuveitan þín hefur samþykkt
skaltu velja Stillt af netkerfi.
● Lína til að hringja — Til að velja símalínu til að hringja, ef SIM-kortið styður margar
símalínur (sérþjónusta)
● Svara við opnun flipa — Til að svara eða slíta símtali með því að opna eða loka
símanum.