
Sími
Veldu Valmynd > Stillingar > Símastillingar og úr eftirfarandi:
● Stillingar tungumáls — Til að velja tungumál símans skaltu velja Tungumál
síma og tungumál. Til að velja tungumál símans í samræmi við upplýsingar á SIM-
kortinu skaltu velja Tungumál síma > Sjálfgefið val.
● Staða minnis — til að skoða upplýsingar um hversu mikið minni er í notkun
● Sjálfvirkur takkavari — Til að læsa takkaborðinu sjálfvirkt eftir tiltekinn tíma þegar
síminn er í biðham og engin aðgerð er í gangi.
● Öryggistakkavari — Til að biðja um öryggisnúmer þegar takkavarinn er tekinn úr
lás.
● Raddkennsl —
Sjá „Raddskipanir“, bls. 35.
● Flugkvaðning — Til að vera spurð(ur) í hvert skipti sem kveikt er á símanum hvort
þú viljir nota flugsnið. Slökkt er á öllum þráðlausum sendingum símans þegar
flugsnið er valið.
Stillingar
© 2008 Nokia. Öll réttindi áskilin.
34

● Uppfærslur — Til að taka á móti uppfærslum á hugbúnaði frá þjónustuveitunni
(sérþjónusta). Það fer eftir símanum hvort hægt sé að velja þennan valkost.
Sjá
„Hugbúnaðaruppfærsla með ljósvakaboðum“, bls. 36.
● Val símafyrirtækis — Til að velja farsímakerfi sem er tiltækt á þínu svæði.
● Kveikt á hjálp.textum — Til að velja hvort síminn sýni hjálpartexta.
● Opnunartónn — Til að spila tón í hvert sinn sem kveikt er á símanum.
● Við lokun síma — Til að velja hvernig síminn virkar þegar hann er lokaður.
● Staðf. SIM-aðgerðir — (sérþjónusta)
Sjá „SIM-þjónusta“, bls. 50.