Nokia 7510 Supernova - Upprunalegar stillingar

background image

Upprunalegar stillingar

Til að nota upprunalegar stillingar símans velurðu Valmynd > Stillingar >

Núllstilla og úr eftirfarandi valkostum:
Endursetja still. eing. — Til að núllstilla símann án þess að eyða persónulegum

gögnum.

Núllstilla allt — Núllstilla símann og eyða öllum persónulegum gögnum (t.d.

tengiliðum, skilaboðum og hljóð- og myndskrám).

Stillingar

© 2008 Nokia. Öll réttindi áskilin.

37

background image

11. Valmynd símafyrirtækis

Aðgangur að þjónustu sem símafyrirtækið býður upp á. Hafa skal samband við

símafyrirtækið til að fá nánari upplýsingar. Símafyrirtækið getur uppfært þessa valmynd

með þjónustuboðum.

12. Gallerí

Þú getur stjórnað myndum, hreyfimyndum, hljóðskrám, þemum, grafík, tónum,

upptökum og mótteknum skrám. Þessar skrár eru vistaðar í minni símans eða á

minniskorti og hægt er að raða þeim í möppur.

Möppur og skrár

Til að skoða lista yfir möppur skaltu velja Valmynd > Gallerí. Til að skoða lista yfir

skrár í möppu skaltu velja möppu og Opna. Til að skoða möppurnar á minniskortinu

þegar skrá er færð flettirðu að minniskortinu og ýtir skruntakkanum til hægri.

Prentun mynda

Síminn styður Nokia XpressPrint fyrir prentun á myndum á jpeg-sniði.
1. Síminn er tengdur við samhæfan prentara með gagnasnúru eða með því að senda

myndir með Bluetooth í prentara sem styður Bluetooth.

Sjá „Þráðlaus Bluetooth-

tækni“, bls. 30.

2. Veldu myndina sem þú vilt prenta og síðan Valkostir > Prenta.

Samnýting mynda og hreyfimynda á netinu

Hægt er að samnýta myndir og myndskeið í samhæfri samnýtingarþjónustu á netinu.
Til að geta notað samnýtinguna verður þú að vera áskrifandi hjá þjónustuveitu sem

annast slíka þjónustu (sérþjónusta).
Til að hlaða upp mynd eða myndskeiði í samnýtingarþjónustu velurðu skrána í

Galleríinu, Valkostir > Senda > Hlaða upp á vef, og síðan samnýtingarþjónustu.
Nánari upplýsingar um samnýtingu og samhæfar þjónustuveitur er að finna á

þjónustusíðum Nokia eða vefsvæði Nokia í heimalandi þínu.
Hægt er að skoða efni sem hlaðið er upp á internetsíður samnýtingarþjónustunnar í

tækinu.

Sjá „Upphleðsla á vef“, bls. 49.

Minniskort

Á minniskorti er hægt að vista margmiðlunarskrár líkt og myndskeið, lög og hljóðskrár,

myndir og gögn í skilaboðum.