Nokia 7510 Supernova - Aðgerðir án SIM-korts

background image

Aðgerðir án SIM-korts

Hægt er að nota suma valkosti í símanum án þess að SIM-kort sé í honum, eins og valkosti

skipuleggjara og leiki. Sumir valkostir eru dekktir í valmyndunum og þá er ekki hægt

að nota.

3. Símtöl

Símtöl hringd

Hægt er að hringja á nokkra vegu:
● Sláðu inn símanúmerið, ásamt svæðisnúmeri, og ýttu á hringitakkann.

Til að hringja á milli landa skaltu ýta tvisvar sinnum á takkann * til að hringja úr

landinu (táknið + kemur í stað 00), velja landsnúmerið, svæðisnúmerið (án 0, ef þess

er þörf) og síðan símanúmerið.

● Þegar ýtt er einu sinni á hringitakkann í biðstöðu opnast listi með þeim

símanúmerum sem hringt hefur verið í. Veldu númer eða nafn og ýttu á

hringitakkann.

● Hægt er að leita að nafni eða símanúmeri sem hefur verið vistað í tengiliðum.

Sjá

„Skipuleggja tengiliði“, bls. 28.

Til að stilla hljóðstyrk símtals ýtirðu hljóðstyrkstakkanum upp eða niður.

Símtali svarað og því slitið

Opnaðu símann og ýttu á hringitakkann til að svara símtali. Ýttu á hætta-takkann eða

lokaðu símanum til að slíta símtalinu.
Ýttu á hætta-takkann til að hafna símtali. Til að slökkva á hringitóninum skaltu velja

Hljóð af.
Til að svara símtali með því að opna einungis símann skaltu velja Valmynd >

Stillingar > Símtals-stillingar > Svara við opnun flipa > Virkt.