
Notkun valmyndarinnar
Í símanum er fjöldi aðgerða sem eru flokkaðar í valmyndir.
1. Veldu Valmynd til að opna valmyndina.
2. Flettu í gegnum valmyndina og veldu valkost (t.d Stillingar).
3. Ef sú valmynd inniheldur fleiri undirvalmyndir skaltu velja eina (t.d. Símtals-
stillingar).
4. Endurtaktu skref 3 ef undirvalmyndin inniheldur aðra undirvalmynd.
5. Veldu stillinguna.
6. Veldu Til baka til að fara aftur í fyrra valmyndarþrep.
Veldu Hætta til að loka valmyndinni.
Útliti valmyndarinnar er breytt með því að velja Valkostir > Aðalskjár valmynd..
Flettu til hægri og veldu úr valkostum sem eru í boði.
Veldu Valkostir > Skipuleggja til að endurskipuleggja valmyndina. Flettu að efninu
sem þú ætlar að flytja og veldu Færa. Flettu að staðnum sem þú vilt færa efnið á og
veldu Í lagi. Til að vista breytinguna velurðu Lokið > Já.