Pakkagögn
GPRS-tækni (General Packet Radio Service) er sérþjónusta sem gerir farsímanotendum
það kleift að senda og taka á móti gögnum um net sem byggir á
Internetsamskiptareglum (Internet Protocol, IP).
Tilgreint er hvernig þjónustan er notuð með því að velja Valmynd > Stillingar >
Tengimöguleikar > Pakkagögn > Pakkagagnatenging og einn af eftirtöldum
valkostum:
● Þegar þörf er — til að koma á pakkagagnatengingu þegar eitthvert forrit þarf á
henni að halda. Tengingunni er lokað um leið og forritinu.
● Sítenging — til að tengjast sjálfkrafa við pakkagagnakerfi þegar kveikt er á
símanum
Hægt er að nota símann sem mótald með því að tengja hann við samhæfa tölvu með
Bluetooth-tækni eða USB-gagnasnúru. Nánari upplýsingar fást í Nokia PC Suite
leiðbeiningunum.
Sjá „Þjónusta Nokia“, bls. 10.